Flest okkar vita að Íslendingar eru afar tæknivæddir og á meðal duglegustu þjóða heims að eyða peningunum sínum í hin ýmsu raftæki. Ekki eins margir vita um tölulegar staðreyndir málsins en til dæmis eru tölvur á 89% íslenskra heimila, 98% eiga sjónvarp og farsíma og 86% Íslendinga nota netið, flestir þeirra daglega og hafa háhraðatengingar. Auk þess eru að sjálfsögðu fleiri tæki sem þykja sjálfsögð á íslenskum heimilum og helst þurfa að vera til sjónvarp, dvd-spilari og hljómflutningstæki í hverju barnaherbergi. Myndbandstækin eru börn síns tíma og eru nú orðin úrelt og dvd-diskar komnir í þeirra stað.
Vasadiskó og ferðageislaspilarar eru einnig úrelt tæki og enginn er maður með mönnum nema hann sprangi um með mp3 spilara í vasanum og hlusti á tónlist sem nú er hægt að kaupa á internetinu þó sumir nái sér þó í tónlist á ólöglegan hátt, reyndar einnig á internetinu. Vegna þessa fara geisladiskar líka að syngja sitt síðasta enda gömul uppfinning.
Varðandi mp3 spilarana þá hefur Apple vafalaust bestu markaðssetninguna á iPodunum sínum og eru með áberandi ráðandi heimsmarkaðshlutdeild og um 90% hér á landi. Hér á Íslandi þurfum við að margra mati að punga út helst til háum upphæðum fyrir iPod, þrátt fyrir "úttroðin" veski okkar, því að íslenska ríkið hefur leiðindatolla á þeim og öðrum slíkum vörum. Apple-umboðið á Íslandi hyggst nú hins vegar höfða mál gegn íslenska ríkinu á næstu dögum vegna þess að ástandið er jú að margra mati óásættanlegt. Fólk kaupir sér þessar vörur frekar erlendis og reynir að "smygla" þeim inn til að komast hjá því að greiða af þeim virðisaukaskatt en á þá vitanlega erfiðara með að nýta sér ábyrgð á tækjunum ef e-ð kemur upp á. Vonandi tekst lögfræðingum Apple að hreyfa eitthvað við stefnu stjórnvalda í þessum málum svo við getum keypt okkur fleiri iPoda og viðlíka vörur á hagstæðara verði.
Það er líka mjög leiðinlegt að þurfa að borga stórfúlgur ef maður vill fá sér aðeins í aðra tána en nú eru gjöld á áfenga drykki, eins og flestir hafa væntanlega tekið eftir, mjög há. Verð á áfengi lækkar líka ekki þrátt fyrir hagstætt gengi krónunnar en væri ekki rökrétt að e-ð samhengi væri þar á milli? Ég vildi gjarnan geta skokkað út í Nóatún og keypt mér kippu af bjór eða rauðvínsflösku með ostinum og vínberjunum en það get ég ekki. Ekki veit ég reyndar til þess að það eigi eftir að breytast á næstunni, þótt það væri vissulega mun þægilegra.
Það væri einnig gaman ef virðisaukaskattur á matvörum yrði afnuminn eða lækkaður verulega því að 50% hærra verð á matvælum er heldur mikið bil að mínu mati, þrátt fyrir að við séum eyland og flutningsgjöld og annað kunni að vera hátt til landsins. Hver vill ekki borga minna fyrir matinn sinn og geta eytt meira í til dæmis áfengi og raftæki? Eða jafnvel nýjan lúxusjeppa? Eða sparnað eins og Landsbankinn reynir að prédika fyrir manni í leiðinlegum og asnalegum auglýsingum í sjónvarpinu. Það er ýmislegt sem Íslendingar telja orðið svo mikilvægt af sínu daglega lífi - hlutir sem fólk annars staðar í heiminum hugsar aldrei um.
Sumir vilja minnast á misskiptingu lífsgæða í þessum efnum, sem vissulega er mikil ef við berum Ísland saman við þriðjaheimsríki Suður-Ameríku, Afríku og Asíu. En ef við finnum aldrei að því hvernig hlutirnir eru hjá okkur því að aðrir hafa það ekki eins gott stöndum við í stað. Ef við lítum í eigin barm sjáum við að vissulega er líka mikil misskipting á milli fólks í íslensku samfélagi. Leikskólakennarar, strætóbílstjórar og öryrkjar hafa til dæmis nóg að gera við að berjast fyrir auknum lífsgæðum á meðan Baugsfeðgar, Björgólfsfeðgar, Bakkavararbræður og margir fleiri breiða sífellt úr sér og Ragnhildur Geirsdóttir fær 130 milljónir við starfslokasamning.
Nú hef ég stokkið úr einu í annað og hafði alls ekki í hyggju að skrifa þennan pistil en hann verður ekki lengri. Ég byrjaði bara þegar ég las um lögsókn Apple á mbl.is en svo kom það inn í að ég hef áhuga á tækninýjungum, mat og víni og vildi gjarnan fá þessar vörur á hagstæðara verði. Svo vildi ég auðvitað að allir gætu haft það gott og fengið nóg að borða og drekka … en í sambandi við það þá hvet ég MR-inga til þess að vera rausnarlegir á morgun og sjá ekki eftir peningunum sínum söfnuninni Gleði til góðgerða. Allir peningar renna óskiptir til Rauða krossins (vona ég).
Rétt að nefna að ég las sitthvað á þessum síðum:
http://www.ns.is/ns/frettir/?cat_id=6413&ew_0_a_id=161564
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1178653
http://www.mbl.is/mm/frettir/serefni/taekni_2006/taekni_2006.html
Láttu mig vera, bannað að snerta
fimmtudagur, janúar 12, 2006
Subscribe to:
Posts (Atom)