Oohhh, eins og ég var nú spenntur fyrir þessum leik. Þetta byrjaði nú alls ekki vel, og þá á ég ekki við markið á 5. mínútu heldur þegar sló út rafmagnið í hálfum Mosfellsbæ kl. 17.56 - eða fjórum mínútum fyrir leik. Þá var ég nýkominn ofan úr sjoppu með ískalt appelsín og popp, sem ég var við það að skella í örbylgjuofninn.
Svo var leikurinn sjálfur ekki upp á marga fiska ... Ég ætla svo sem ekki að vera úthúða „strákunum okkar“ - en þeir hefðu þó mátt nýta þessi fáu færi og mættu líka halda boltanum á jörðinni. Við gerum bara betur næst, ehaggi?
Láttu mig vera, bannað að snerta