Í stuttu máli hefur þetta verið gjééggjað sumar þökk sé: Salamanca + íslensku hálendi og suðurlandsundirlendinu + Marmaris
Gallar: ég missti af íslenska sumrinu og ég á núll peninga - en það eru smámunir og reddast nú reyndar með smá púli með skólanum.
Síðustu daga hef ég svo verið að jafna mig eftir allt þetta grín því ég hef verið með harðsperrur í lifrinni, vannærður og illa sofinn í langan tíma. Nú er ég bara orðinn hressur og er spenntur að byrja aftur í skólanum og hlakka til að fara að gera eitthvað af viti.
Láttu mig vera, bannað að snerta