Láttu mig vera, bannað að snerta

mánudagur, maí 01, 2006

Elskaðu náungann

Það er alltaf gaman að fá sms frá fólki sem maður þekkir ekki, sem ekki ætlar að senda manni sms. Í dag fékk ég eitt slíkt, sem greinilega átti ekki að fara í minn síma, heldur einhvern allt annan. Ég ákvað að nota tækifærið til þess að hressa aðeins upp á daginn, sem ekki hefur verið mjög líflegur heldur einkennst af próflestri. Í skeytinu saklausa stóð:

„Það gengur vel. Hún borðar alveg og hin kisan er hætt að vakta hana stöðugt og hvæsa :-)“

Þessu svaraði ég með eftirfarandi orðum: „Það er nú flott, skíttu í þig.“

Ég veit ekki hvað kom yfir mig og hvers vegna ég skrifaði þetta en ég bara vissi ekki hverju ég ætti að svara og reyndar fannst mér fyndið að segja þetta á þeim tímapunkti (ég er svo einfaldur). Reyndar fékk ég svolítið samviskubit eftir á og íhugaði að senda jafnvel eitthvað aðeins mildara aftur en þá fékk ég nýtt skeyti sem í stóð „Vitlaust nr. fáviti“.

Þetta var hressandi en næst þegar ég fæ eitthvað svona skeyti (ég hef fengið nokkur áður, t.d. um útvíkkun hjá eiginkonu á fæðingardeildinni o.fl) þá ætla ég ekki að svara því dónalega því að maður á auðvitað að koma fram við náunga sinn eins og maður vill láta koma fram við sig.

Þetta var kærleikspistill vikunnar, kæru lesendur - vonandi opna ég augu einhverra, sem munu þá koma betur fram við ALLA Í HEIMINUM. Aaaaahh, pís át.

About me

Kári Sighvatsson
MOSFELLSBÆR, Iceland
View my complete profile