Eins og allir vita og Barði úr Bang Gang orðaði svo skemmtilega, þá „gera íslenskir tónlistarmenn nákvæmlega það sem þeim sýnist, vegna þess að þeir vita að þeir munu aðeins selja 200 plötur“ og það er ástæðan fyrir því að íslensk tónlist er sérstök, öðruvísi og umfram allt - hip&kúl.
Þessir strákar eiga framtíðina fyrir sér í bransanum, enda aðeins 14 ára gamlir (held ég) ... endilega tékkið á þeim og gefið þessu smá séns ... þeir verða betri með hverri hlustun.
Hljómsveitin er búin að gefa út tvö lög á Rokk.is
og hér er svo heimasíðan þeirra, mæli með því að þið skoðið textana þar og lærið þá strax utan að - ef þið viljið vera menn með mönnum. Þið getið væntanlega lesið viðtal við þá í næsta tölublaði Séð&Heyrt en þeir áttu að vera í því síðasta. Þetta eru menn með mikla hæfileika til textasmíða og mun vafalaust mikið fara fyrir þeim á næstu misserum. Ég hlakka til að Sjá&Heyra meira.
Láttu mig vera, bannað að snerta