Chesnuts roasting on an open fire ...
... Það er greinilega farið að styttast í jólin. Jólaskreytingarnar eru löngu komnar upp um allan bæ og jólaklósettpappírinn kominn (ööh).
Gaman væri að geta slakað á og gert eitthvað skemmtilegt en það get ég auðvitað ekki strax - ég hef alltof mikið að lesa upp, æææ. Það er leiðinlegt að fatta að maður hefur ekki verið nógu duglegur þegar svo stutt er í próf en vonandi fer allt vel. Jájá.
Allir skelli sér á Harry Potter við tækifæri. Klassi.
Láttu mig vera, bannað að snerta
laugardagur, nóvember 26, 2005
sunnudagur, nóvember 13, 2005
föstudagur, nóvember 11, 2005
Kári Stefánsson
Viðtalið við nafna minn, Kára Stefánsson, í Kastljósinu í gær var bara aðeins of fyndið. Þeir sem misstu af því, ættu hiklaust að horfa á það.
Frábær uppgötvun hjá ÍE og co. samt.
Frábær uppgötvun hjá ÍE og co. samt.
mánudagur, nóvember 07, 2005
Benedikt Magnússon II
Já, það er kannski rétt að benda á, vegna þess að ég talaði um hann í vikunni, að drengurinn er búinn að setja nýtt, viðurkennt heimsmet í réttstöðulyftu. Hann lyfti 440 kg á móti í Finnlandi. Heimsmetið var 425 kg (en hann átti það ekki þó svo hann hafi lyft 426 kg á æfingu.)
Á maður ekki að vera ánægður með íslenskan heimsmeistara?
Á maður ekki að vera ánægður með íslenskan heimsmeistara?
sunnudagur, nóvember 06, 2005
Sudoku
Sudoku þrautir eru ávanabindandi.
[update]: hingað til hef ég bara gert þrautir þegar ég fer í heimsókn upp í Mosfellsbæ en áðan fann ég sudoku á netinu. Æææ.
[update]: hingað til hef ég bara gert þrautir þegar ég fer í heimsókn upp í Mosfellsbæ en áðan fann ég sudoku á netinu. Æææ.
föstudagur, nóvember 04, 2005
þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Hið íslenska þarfanaut
Fréttamaðurinn Gísli Einarsson, fréttamaður á Vesturlandi, er steiktur gaur og sér nú um leitina að eftirnauti Guttorms í Húsdýragarðinum. Þetta er skemmtileg og spennandi keppni og gerir létt grín að asnalegum sjónvarpsþáttum eins og bachelor.
Þú munt geta kosið þitt uppáhalds naut á mu.is eða hér á vef Kastljóssins þegar vefirnir verða uppfærðir. Láttu ekki þitt eftir liggja, því eins og Gísli orðaði það, þá mun sigurvegarinn eyða ævi sinni í Húsdýragarðinum og sleppa við þau grimmu örlög að verða roastbeef og borðaður með remúlaði.
Sniðugt á Íslandi.

Subscribe to:
Posts (Atom)